Bréfamaraþon Amnesty International á Egilsstöðum

amnesty_brefamarathon_egilsstadir_2010_web.jpgUndanfarin ár hefur Amnesty International og Kirkjan á Héraði staðið fyrir stuttri dagskrá í Egilsstaðakirkju á Alþjóðlega mannréttindadaginn þann 10. desember. Svo verður einnig nú og hefst hún kl 17.30. Sigrún Blöndal flytur stutta hugvekju og Kór Egilsstaðakirkju syngur.

 

Kirkjan verður opin til kl 20.00 og munu liggja frammi kort fyrir fólk til að skrifa undir og styðja þannig þá sem á eru brotin viðurkennd grundvallarréttindi. Þetta er hluti af alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty sem fer fram í desember á hverju ári.

Fjölmennum í þágu fórnarlamba mannréttindabrota!

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.