Telja að hreppsnefnd hefði átt að hafa lokaorðið um laun oddvita sem sveitarstjóra
Minnihlutinn í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps átelur oddvita sveitarstjórnar fyrir vinnubrögð hans við launaútreikning til síns er hann leysti tímabundið af sem staðgengill sveitarstjóra. Oddvitinn segist hafa leitað álits Sambands íslenskra sveitarfélaga við ákvörðunina.„Mörg mikilvæg byggðamál eru í grunninn neytendamál“
Neytendasamtökin eru nú fyrsta sinni á ferð um landið til þess bæði að kynna sig og sína starfsemi fyrir sveitarstjórnum á landsbyggðinni en ekki síður til að eiga samtal við almenning um þau neytendamál sem á þeim brenna.
Hinsta sigling Jóns Kjartanssonar undirbúin
Dráttarbátur er kominn til Reyðarfjarðar til að draga Jón Kjartansson SU-311 til Danmerkur. Þar mun sögu skipsins ljúka því hann hefur verið seldur í brotajárn.Aldrei staðið til að skerða þjónustuna í Breiðabliki
Formaður fjölskylduráðs Fjarðabyggðar segir mistök hafa orðið til þess að rangar upplýsingar fóru út frá sveitarfélaginu um breytingar á þjónustu í Breiðabliki, þjónustuíbúðum aldraðra í Neskaupstað. Íbúi segir fólkið í húsinu hafa farið tiltölulega sátt út af fundi með forsvarsfólki sveitarfélagsins í gær.Telja breytingar á úthlutun kennslutíma ekki nógu vel útskýrðar
Fulltrúar Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar sátu hjá á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku við ákvörðun um breytingar á kennsluúthlutun í grunnskólum. Fulltrúar meirihlutans segja breytingarnar snúa að forgangsröðun í þágu þeirra barna sem þurfa á stuðningi að halda. Fulltrúar minnihlutans telja óljóst hvernig þær eiga að ná tilætluðum árangri.Enn vatnsmengun í Breiðdal og á Seyðisfirði
Enn mælist mengun bæði í vatnsbóli Breiðdælinga og við Strandarveg á Seyðisfirði samkvæmt síðustu sýnatökum. Hún þó væg á báðum stöðum.
Vill að byrjað verði á vindorkuveri á Esjunni áður en lengra verður haldið
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskaði fyrir nokkru eftir umsögnum sveitarfélaga um fyrirhugað frumvarp til laga um virkjanakosti í vindorku. Múlaþing endursendi sína fyrri umsögn þar sem frumvarpsdrög nú höfðu ekki tekið neinum efnislegum breytingum frá fyrstu tillögum.
Bjarni Ólafsson AK auglýstur til sölu
Síldarvinnslan hefur sett uppsjávarveiðiskiptið Bjarna Ólafsson AK á söluskrá þar sem fá verkefni eru fyrir það. Skipið er í góðu ásigkomulagi, nýkomið úr slipp. Frábærri kolmunnavertíð er að ljúka.Afnema orkuskerðingar til stórnotenda á landinu öllu
Landsvirkjun hefur ákveðið af aflétta öllum skerðingum á afhendingu raforku til stórnotenda frá og með deginum í dag. Það er þremur til fimm vikum fyrr en reiknað var með.