„Auka par af höndum“
Hollvinasamtök utanspítalaþjónustu í Fjarðabyggð bauð vinum og velunnurum til formlegrar móttöku á tveimur hjartahnoðtækjum sem þau hafa safnað fyrir að undanförnu. Andvirði tækjanna er tæpar fimm milljónir króna.„Það er maður þarna með hund“
Vélsleðamenn sem fundu Friðrik Rúnar Garðarsson sem leitað hafði verið að á Héraði síðan á föstudagskvöld segja að ekki hafi mátt tæpara standa áður en aftur gekk á með él og skyggni versnaði þegar þeir fundu hann á göngu í morgun.
Leitað meðan mannskapurinn getur
Um 200 manns eru skráðir virkir við leit að rjúpnaskyttu sem leitað hefur verið að á Völlum á Héraði síðan um klukkan átta í gærkvöldi. Leit verður haldið áfram meðan hægt er.
Kennarar tilbúnir að gera það sem þarf til að fá leiðréttingu launa
Kennarar á Fljótsdalshéraði lögðu niður störf eftir hádegið og gengu á fund bæjarráðs og bæjarstjóra til að leggja áherslu á kröfur sínar um bætt kjör. Talsmaður kennara segir fólk úr stéttinni velja önnur störf þar sem betra kaup bjóðist.
Varað við slitlagsblæðingum á austfirskum vegum
Vegagerðin varar vegfarendur á Austurlandi við mögulegum slitlagsblæðingum. Slitlagskögglar sem brotna af bílum geta verið varasamir.
„Það verða allir mjög kátir þegar menn finnast á lífi eftir svona langa leit,“
Vélsleðamenn björgunarsveita fundu rjúpnaskyttu sem leitað hafði verið að síðan á föstudagskvöld á gangi niður Köldukvíslardal í áttina að Fagradal klukkan rúmlega tíu í morgun.
Seinheppin sveit að sunnan
Það gekk ekki þrautalaust fyrir um 50 björgunarsveitarmenn úr Reykjavík að komast austur á Hérað til aðstoðar við leit að týndri rjúpnaskyttu.
Fyrsta síldin í nýja frystihúsinu á Eskifirði
Fyrstu síldin er á leiðí gegnum nýtt frystihús Eskju á Eskifirði. Fyrsta síldin að loknu sjómannaverkfalli barst til Austfjarða í gær.
Boðskapurinn skilar sér heim
Leikskólinn Lyngholt fagnaði á dögunum þeim góða árangri að hljóta grænfánann í fimmta sinn. Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri og Anna Berg Samúelsdóttir, umhverfisstjóri, aðstoðuðu nemendur við að draga fánann að húni.Rjúpnaskyttan fundin
Rjúpnaveiðimaðurinn sem leitað hefur verið að síðan á föstudagsmorguninn er fundin heill á húfi.Búast við um 200 manns í mat
Sjálfboðar Rauða krossins á Héraði hafa opnað fjöldahjálparmiðstöð í Egilsstaðaskóla þar sem björgunarsveitarmönnum sem leitað hafa að rjúpnaskyttu á Völlum síðan í gærkvöldi gefst færi á að hvíla sig og næra.