Vopnfirðingur fyrstur til að hljóta Barnaréttindaverðlaun

Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar frá Vopnafirði, varð í síðustu viku fyrstur til að hljóta Barnaréttindaverðlaun ungmennaráða UNICEF á Íslandi, Barnaheilla og ráðgjafarhóps umboðsmanns barna.


Verðlaunin falla í hlut þess þingmanns sem ungmennunum þykir hafa staðið sig best í að vekja athygli á og berjast fyrir réttindum barna á Alþingi á ári hverju. Verðlaunin verða veitt árlega.

Í rökstuðningi ungmennaráðanna kom fram að Páll Valur Björnsson skari fram úr öðrum þingmönnum við að vekja athygli á hagsmunum barna á Íslandi, ekki síst þeirra barna sem standa höllum fæti í samfélaginu.

Hann hafi án afláts sett upp „barnagleraugun“ í þeim tilgangi að berjast fyrir réttindum barna á Íslandi. „Barnagleraugun eru tæki sem talsmenn barna á Alþingi eiga að nota til þess að sjá heiminn frá sjónarhorni barns,“ sagði í rökstuðningi ungmennaráðanna.

„Páll Valur gerir sér grein fyrir að börn eiga sín eigin mannréttindi sem þarf að vernda og framfylgja. En allir verða að leggja hönd á plóg til að skapa betri heim fyrir öll börn. Við óskum Páli Vali til hamingju með verðlaunin. Störf hans hafa verið til fyrirmyndar og munu vonandi verða hvatning fyrir samstarfsmenn hans til þess að berjast fyrir réttindum barna.“

Óþreytandi við að tala um mannréttindi barna

Ungmennaráðin benda á að Páll Valur Björnsson hafi í störfum sínum á Alþingi lagt „mikið af mörkum“ til réttindamála barna. Hann var fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem samþykkt var í vor, um að 20. nóvember, alþjóðlegur dagur barnsins, verði helgaður fræðslu um réttindi barna í grunnskólum landsins.

Hann hefur beitt sér fyrir því að grunnskólanám verði raunverulega gjaldfrjálst, bent á aðstöðuleysi á Litla-Hrauni og að börn geti ekki heimsótt feður sína sem þar eru vistaðir, lagt fram fyrirspurnir til ráðherra um málefni barna, til dæmis um börn með ADHD og skyldar raskanir, barist gegn efnislegum skorti meðal barna og svo mætti lengi telja.

Auk þess hafi hann verið óþreytandi við að tala fyrir mannréttindum barna í ræðum sínum á Alþingi, skrifað pistla og greinar og verið sérlega duglegur við að þiggja boð á viðburði, fundi og ráðstefnur þar sem vakin er athygli á réttindum barna. Páll Valur hefur síðan árið 2014 verið einn af sex talsmönnum barna á Alþingi.

Gefandi að vinna með börnum

Páll Valur starfaði sem kennari áður en hann settist á þing 2013. Í viðtali við Austurgluggann síðasta haust sagðist hann vera stoltur af því að hafa verið útnefndur talsmaður barna hjá Bjartri framtíð. „Það er gefandi að vinna með börnum og ég hef tekið þetta hlutverk mjög alvarlega.“

Í yfirlýsingu ungmennaráðanna segir að stjórnmálamenn miði almennt stefnumál sín og kosningafyrirheit út frá fullorðnum. Séu börn tekin með í reikninginn sé það alltaf út frá fjölskyldum. Börn hafi ekki kosningarétt og gleymist þess vegna gjarnan sem hagsmunahópur en eigi sín mannréttindi sem þurfi að vernda og framfylgja.

Páll Valur fékk við athöfn í þinghúsinu afhent viðurkenningarskjal og verðlaunagrip.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.