Vilja heilsársveg yfir Öxi inn á samgönguáætlun
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps telur eðlilegt að ráðist verði í gerð heilsársvegar yfir Öxi í framhaldi af vegabótum í botni Skriðdals. Það sé í samræmi við ályktanir aðalfunda Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA).Þetta kemur fram í áskorun sem samþykkt var á síðasta fundi fráfarandi hreppsnefndar sem var í júní. Þar fór Andrés Skúlason fráfarandi oddviti, yfir stöðuna í samgöngumálum sveitarfélagsins en Andrés hætti í sveitarstjórn í voru eftir 16 ára setu.
Í bókun frá fundinum kemur fram að Axarvegur hafi verið langstærsta baráttumál Djúpavogshrepps um langt skeið og á síðustu vikum og mánuðum hafi oddvitinn fundað um málið með ráðherrum, þingmönnum, vegamálastjóra og öðru sveitarstjórnarfólki á Austurlandi.
Vinnan hafi einkum miðað að því að koma Öxi inn á samgönguáætlun til næstu fjögurra til fimm ára með fullnaðarfjármögnun þar sem framkvæmdum yrði skipt niður á þrjú ár. Mikilvægt sé að ný hreppsnefnd fylgi málinu eftir þar sem ný samgönguáætlun verður lögð fram á Alþingi í haust.
Undirbúningur Axarvegar var kominn vel á skrið fyrir efnahagshrunið 2008 en þá að miklu leyti ýtt út af borðinu. Í bókuninni segir að þá hafi verið ákveðið að skipta verkinu upp í þrjá hluta, í fyrsta lagi nýjan veg um botn Berufjarðar, í öðru lagi nýjan veg í botni Skriðdals og í þriðja lagi heilsársveg yfir Öxi.
Vegurinn í Berufirði á að vera tilbúinn í lok sumars. Kaflinn í Skriðdal var boðinn út nýverið og átti Héraðsverk lægsta tilboðið.
Þá segir að mikilvægur árangur hafi náðst með að afla stuðnings meirihluta fulltrúa á aðalfundum SSA. Sveitarstjórnin þakkar þeim sveitarfélögum á Austurlandi sem stutt hafa baráttu hreppsins fyrir veginum.
Áskorun sveitarstjórnarinnar er beint til samgönguráðherra, þingmanna Norðausturkjördæmis og Alþingi alls að standa við gefin fyrirheit um að ráðast í gerð heilsársvegar um Öxi við gerð næstu samgönguáætlunar, í beinu framhaldi af veginum í botni Skriðdals.
Sveitarstjórnin krefst þess að Alþingi virði skýra niðurstöðu aðalfunda SSA um forgangsröðun framkvæmda, annað sé óboðlegt gagnvart lýðræðislegri niðurstöðu fundanna.