Varað við hvassviðri í dag
Vegagerðin hefur sent frá sér viðvörun til ferðalanga á leið um Austurland í dag vegna hvassviðris sem er á leiðinni.Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að vaxandi lægð fari norður fyrir Austurland í dag. Henni fylgi norðvestan-átt, sérstaklega á Norðausturland frá því síðdegis og fram eftir kvöldi.
Veður verði byljótt og hviður geti farið upp í 25-30 m/s til dæmis í Jökulsárhlíð og sums staðar norðan til á Austfjörðum.
Akstursskilyrði fyrir ökutæki með aftanívagna sem og önnur ökutæki sem taka á sig mikinn vind geta því verið varasöm.
Úr vindinum dregur í kvöld og á nótt og á morgun er gert ráð fyrir allt að 18 stiga hita eystra.