Um þrjátíu manns bólusettir til viðbótar
Um þrjátíu Austfirðingar fá í vikunni sína fyrstu umferð af bóluefni við Covid-19 veirunni.Í gær barst önnur sending af bóluefni Pfizer/BioNTech til landsins. Úr fyrstu sendingunni, milli jóla og nýárs, komu 170 skammtar austur.
Þá var bólusett starfsfólk í framlínu heilbrigðisþjónustu og íbúar á hjúkrunarheimilum. Endurtaka þarf þá bólusetningu eftir að minnsta kosti þrjár vikur og verður það gert nú í vikunni.
Þá fær HSA 34 skammta úr sendingunni sem barst í gær. Þeir verða nýttir til að bólusetja fólk úr næsta forgangshópi sem eru þeir sem njóta þjónustu heimahjúkrunar, sambýla og dagdvalar.