Um 250 tonn af brotajárni fjarlægð í umhverfisátaki

Hringrás hefur nú tekið á móti um 250 tonnum af brotajárni í umhverfisátaki Fjarðabyggðar. Átakið hefur staðið frá því í haust og hefur þátttakan farið fram úr björtustu vonum og þakkar Fjarðabyggð hlutaðeigandi fyrir þáttökuna.

Fjallað er um málið á vefsíðu sveitarfélagsins. Þar segir að Fjarðabyggð í samstarfi við Hringrás hefur síðustu mánuði unnið að umhverfisátaki í dreifbýli Fjarðabyggðar. Átakið gengur út á það að fá fjarlægt brotajárn og bílhræ af jörðum í sveitarfélaginu.

„Ekki verður annað sagt en að viðbrögð landeigenda hafi verið afar góð og hefur Hringrás nú tekið um 250 tonn af brotajárni hjá þeim sem tóku þátt,“ segir á vefsíðunni.

„Í september sl. var sent bréf til landeigenda þar sem umhverfisátakið var kynnt og þeim boðið að koma brotajárni s.s. ónýtum tækjum inn til endurvinnslu. Eina krafan sem gerð var til þátttöku í verkefninu var að aðgengi fyrir vörubíl og brotajárnsgáma væri gott.“

Fjarðabyggð tók á móti skráningum í verkefnið og kom þeim til Hringrásar sem í framhaldinu sá um að fjarlægja brotajárnið. Landeigendur fengu ýmist gáma sem þeir fylltu í sjálfir eða Hringrás kom með kranabíl til að hirða upp brotajárnið.

„Það var von Fjarðabyggðar þegar verkefnið hófst að sem flestir tækju þátt, en það verður að segjast að þátttakan fór fram úr björtustu vonum. Fyrirhugað er að halda áfram með þetta samstarf Fjarðabyggðar og Hringrásar á komandi ári.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.