Tækifærið nýtt til að setja Lagarfljótsorminn á flot – Myndir
Ferjan Lagarfljótsormurinn fór á flot á ný í hádeginu í dag en hún hefur verið á þurru landi árum saman. Eigandi ferjunnar nýtti tækifærið í flóðunum. Lagarfljótið er nánast sem einn fjörður á að líta.„Við vorum búnir að áforma að hífa hann en við ákváðum að nýta tækifærið í flóðinu. Ferjan hefur ekki verið á floti í tíu ár.
Við fórum með tvær gröfur, strákarnir skruppu í hádeginu til að gera þetta en ferjan flaut eiginlega upp,“ segir Hlynur Bragason, eigandi ormsins.
Aðeins tók nokkrar mínútur að koma ferjunni upp eftir að gröfurnar voru komnar á staðinn. Hlynur segir óvíst hvað hann geri næst við skipið. „Ég hef ekki glóru um það, það kemur í ljós.“
Hann segir ástand skipsins ágætt. „Það er fínt. Það hefur verið brotist inn í það og brotnir gluggar. Því þarf að laga og snurfusa en skrokkurinn er í lagi. Ég veit hins vegar ekkert um vélarnar.“
Vatnsyfirborðið í Lagarfljóti hefur risið stöðugt í allan morgun, frá klukkan sex í gærmorgun til hádegis hefur hækkað um heilan metra samkvæmt tölum Veðurstofunnar.
Fljótið breiðir úr sér yfir tún Egilsstaðabænda og liggur í brúnni. Á flugvellinum hafa menn fylgst með þróun mála í morgun.
Fljótið rennur úr Leginum en í það fellur Jökulsá í Fljótsdal sem olli töluverði tjóni þegar hún flæddi yfir bakka sína í gærmorgun. Vatnsmagnið við Valþjófsstaðarnes náði hámarki um klukkan fimm í gær en síðan hefur rennslið í ánni minnkað þótt það sé enn mun meira en venjulega.