Stigar og pallar við Stuðlagil brátt tilbúnir

Búið er að koma upp stálstigum og útsýnispöllum niður að Stuðlagili við bæinn Grund á Efri Jökuldal. Lítilsháttar frágangsvinna er eftir en bíður hún þess að verktakinn komi úr sumarfríi. Reiknað er með að endanlega ljúki framkvæmdum í næsta mánuði.

Stefanía Katrín Karlsdóttir einn af eigendum Grundar segir að þessar framkvæmdir mun stórbæta öryggi þeirra sem vilja fara niður í og skoða gilið.

„Það eru raunar mjög fáir ferðamenn hér í dag,“ segir Stefanía Katrín. „Og það eru allt erlendir ferðamenn. Þeir íslensku hættu að koma hingað eftir fyrstu vikuna í ágúst.“

Mórauð á í augnablikinu

Eins og greint var frá hér á Austurfrett í morgun byrjaði vatn að renna um yfirfall Hálslóns á laugardag og niður farveg Jökulsár á Dal. 

Stefanía Katrín segir að áin í gilinu sé því mórauð í augnablikinu og engir ferðamenn séu að fara niður í gilið. „Þegar fólk sér mórauða jökulsá í staðinn fyrir blátæra bergvatnsá hefur það engan áhuga á að fara niður í gilið,“ segir Stefanía Katrín. „Það er skiljanlegt því liturinn á ánni hefur áhrif á það hvernig fólk upplifir gilið.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.