Spenninum treyst næstu daga en vel fylgst með
Búið er að undirbúa varatengingu við dreifikerfi Landsnets ef aflspennir Rarik í tengivirkinu á Stuðlum í Reyðarfirði slær út aftur, líkt og hann gerði í gærmorgunn. Bilunin í honum er ekki talin alvarleg þótt ljóst sé að starfsemi hans sé ekki fullkomlega eðlileg.„Eftir gærdaginn höfum við náð betri mynd af spenninum. Við teljum að bilunin í honum hafi ekki verið alvarleg.
Með að taka sýni af olíunni á honum og greina gös í henni er hægt að sjá hvað er að gerast í spenninum. Ákveðin gös gefa merki um alvarlega bilun meðan önnur sýna að hún sé minna alvarleg.
Engu að síður er eitthvað að gerast í spenninum sem við erum ekki sátt við. Við treystum spenninum því áfram en höfum hann undir ströngu eftirliti,“ segir Örvar Ármannsson, deildarstjóri netreksturs hjá Rarik á Austurlandi.
Rafmagn fór af Reyðarfirði upp úr klukkan hálf átta í gær og var Reyðfirðingum nokkru síðar sagt að búa sig undir rafmagnsleysi til kvölds þar sem bilunin væri alvarleg. Skömmu fyrir klukkan tvö komst spenna á spennirinn á ný og þar með rafmagn á Reyðarfjörð sem hefur haldist síðan. Takmarkaðar líkur eru taldar á að bilunin endurtaki sig.
Strax í gær voru sendar varaaflvélar frá Seyðisfirði og Akureyri auk varaspennis frá Akureyri. Aðstæður voru erfiðar, Fjarðarheiðin lokuð framan af degi og Fagridalurinn allan daginn. Flutningabíll með varaaflvél frá Seyðisfirði festist á dalnum. Þá eru bæði aflvélarnar og spennarnir miklir um sig, hægt var með ráðstöfunum að koma vélunum í gegnum Vaðlaheiðargöng en ryðja þurfti Víkurskarð fyrir spenninn.
Flutningurinn gekk að lokum og nú eru þrjár varaaflvélar tilbúnar á Reyðarfirði en spennirinn bíður á Egilsstöðum. Hann verður væntanlega fluttur yfir í dag. „Það hefur ríkt mikil samheldni og allir lagst á eitt við að bjarga Reyðfirðingum úr þessum ógöngum,“ segir Örvar.
Í dag verður áfram unnið að því að undirbúa aðgerðir sem hægt er að grípa til ef spennirinn slær út aftur. Örvar segir mikilvægast þar neyðarfæðingu frá spenni Landsnets á Stuðlum inn til Reyðarfjarðar. Til hennar er hægt að grípa með tiltölulega stuttum fyrirvara en eftir er að fara betur yfir til hversu langs tíma er hægt að treysta á hana.
Spennirinn verður skoðaður frekar af sérfræðingum strax eftir áramótin og metið hvort hægt sé að gera við hann á staðnum. Í tilkynningu Rarik frá í gær segir að aðgerðum kunni að fylgja tímabundið rafmagnsleysi. Allt skipulagt straumrof verði tilkynnt til viðskiptavina sem fyrir því verða.
Tengivirkið á Stuðlum. Mynd: Rarik/Hafliði Bjarki Magnússon