Skóli til sölu hjá Fjarðabyggð

Fjarðabyggð hefur auglýst eignir til sölu á vefsíðunni sinni. Meðal eignanna er fyrrum skólahúsnæði að Kirkjumel á Norðfirði.

Stærstur hluti eignanna eru blokkaríbúðir á Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupstað. Auk þess er að finna níu parhús á listanum, þar af fjögur á Leynimel á Stöðvarfirði. Þá eru tvö einbýlishús á Breiðdalsvík til sölu. Eignirnar eru margar í útleigu og verða aðeins seldar ef þær losna.

Einnig er að finna á listanum áhaldahúsið að Búðareyri 19 á Reyðarfirði.

Á vefsíðunni kemur fram að listin er gerður skv. reglum Fjarðabyggðar um sölu íbúða í Fjarðabyggð og hefur verið samþykktur af eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar