Rannsóknarsetrið styrkt um 10 milljónir króna
Fjarðabyggð mun styrkja Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík um 10 milljónir kr. á næstu árum. Þetta kemur fram í nýjum samstarfssamning sem undirritaður var í Breiðdalssetri á þjóðhátíðardeginum í gærdag.“Megin markmið samstarfssamningsins er að efla þekkingar- og rannsóknarstarf í Fjarðabyggð og á öllu Austurlandi, og festa Rannsóknarsetur HÍ á Breiðdalsvík í sessi. Alls leggur Fjarðabyggð setrinu til 10 milljónir króna í styrk á árinum 2022, 2023 og 2024 og leigir auk þess setrinu húsnæði í Breiðdalssetri undir starfsemi þess,” segir í umfjöllun um málið á vefsíðu Fjarðabyggðar.
Fram kemur að Rannsóknarsetrið byggi á grunni þeirrar vinnu sem unnin hefur verið í Breiðdalssetri undanfairn ár og er það starfað í nánu samstarfi við Náttúrfræðistofnun Íslands. Jarðvísindi og málvísindi eru megináherslan í starfsemi setursins og gert er ráð fyrir að helstu verkefni lúti að rannsóknum og miðlun rannsóknarniðurstaðna, sem og kennslu og leiðbeiningu framhaldsnema í jarðvísindum.
Við setrið starfa tveir fræðimenn á sviði jarðvísinda, þau Tobias B. Weisenberger forstöðumaður og María Helga Guðmundsdóttir, verkefnastjóri, en auk þeirra starfar í sumar með þeim Arna Silja Jóhannsdóttir
Mynd: Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Tobias Weisenberger, forstöðumaður, rita undir samkomulagið í Breiðdalssetri./fjardabyggd.is