Ráðherrarnir vildu vita hvernig fólki liði
Á fundi fjögurra ráðherra með þeim Birni Ingimarssyni sveitarstjóra Múlaþings og Gauta Jóhannessyni forseta sveitarstjórnar var farið yfir stöðu mála og spurningum ráðherra svarað. Spurningarnar voru meðal annars um líðan Seyðfirðinga á þessari stundu.Í skeyti frá Gunnari Gunnarssyni ritstjóra segir: Ráðherrar fjórir sem komu til Egilsstaða í morgun eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Með ráðherrunum í för eru Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum og Jón Svanberg framkvæmdastjóri Landsbjargar. Þessi hópur er nú á Seyðisfirði.
Fyrrgreindur fundur í morgun var haldin í Samfélagsmiðstöðinni og hófst um hálftíu leytið. Eftir að Björn og Gauti höfðu farið yfir stöðuna á Seyðisfirði spurðu ráðherrarnir spurninga. Þeir vildu meðal annars vita hvað hefði helst komið fram á íbúafundinum í gærdag. Einnig var spurt um líðan og aðstæður þeirra um 200 íbúa sem enn ekki hafa komist heim. Sem og spurningar um líðan og aðbúnað þeirra sem starfa á vettvangi svo dæmi séu tekin.
Einnig var spurt um tjón á menningarverðmætum, þar á meðal Tækniminjasafninu og spurt hvort ekki hafi skipt sköpum að Fjarðarheiðin var fær þegar skriðuföllin hófust.