Orf í hreindýrum: Aldrei snerta hrúður með berum höndum

Smitsjúkdómurinn orf hefur greinst í nokkrum hreindýrum á yfirstandandi veiðitímabili, en Náttúrustofa Austurlands hafði samband við Matvælastofnun vegna gruns um sjúkdóminn. 

 

 

Var það leiðsögumaður með hreindýraveiðum hjá Umhverfisstofnun sem hafði fyrst samband við Náttúrustofuna. Sýni voru tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum þar sem greining fór fram. Meinafræðiniðurstöður leiddu í ljós að breytingarnar samrýmdust þeim sem verða við orf-veirusýkingu. Við veirurannsókn, sem var einnig framkvæmd á Keldum, kom í ljós að um parapox-veiru var að ræða sem staðfestir greininguna.

Sjúkdómurinn er vel þekktur í sauðfé. Oftast verða dýrin ekki mikið veik en smitið getur valdið skemmdum á júgri og þar með vanþrifum í kálfum. Fólk getur smitast af snertingu við hrúðrið sem sýkingin veldur.

 

Veiran verið landlæg á Austurlandi í sauðfé um árabil

Orf, sem einnig er nefnt smitandi munnangur, kindabóla eða sláturbóla er veirusýking sem er landlæg í sauðfé um allt Austurland og hefur verið í áratugi. Hún finnst einnig víðar á landinu. Veiran virkar þannig að eftir smit myndast lífslangt ónæmi, því er mikilvægt að ungviði smitist snemma þar sem veiran er landlæg. Þegar veiran berst í eldri dýr sem ekki eru með ónæmi þá fer þetta á aðra staði en munnvik, t.d. við hornarót, klaufir eða það sem verst er á júgur og spena.

Mjög líklegt er að orf- geti smitast frá sauðfé yfir í hreindýr en sýkingin hefur greinst í mörgum dýrategundum. Líklega veldur þetta ekki miklum vandræðum nema það berist á júgur hreinkúa meðan þær mjólka mest. Þá verða helstu áhrifin á hjörðina sú að kálfar gætu verið í minna lagi en það fer eftir aldri kálfanna þegar kýrin smitast. Sýkingin gengur þó yfir á nokkrum vikum. Smit verður með snertingu og öðru sem hefur komist í snertingu við sýkta vessa.

Borist hafa tilkynningar frá Austurlandi um alvarlegri tilfelli þar sem breytingarnar ná dýpra í undirliggjandi vef. Líklegt er að það séu afleiðingar bakteríusýkinga sem koma í kjölfar húðbreytinga sem stafa af veirusýkingunni. Afleiðingar slíkra sýkinga eru líklegar til að hafa langvarandi áhrif á mjólkureiginleika hreindýrakúnna en það fer eftir því hversu djúpt í vefinn sýkingin nær.

Smitandi munnangur getur borist í fólk og veldur þá stundum vondum sýkingum, einkum á fingrum. Það er því full ástæða til þess að vara veiðimenn við og minna á að snerta aldrei hrúður með berum höndum.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar