Nýr organisti og kórstjóri á Austfjörðum

Þrjár sóknir Austfjarðaprestakalls, Reyðarfjarðar-, Eskifjarðar- og Norðfjarðarsókn hafa ráðið til sín eistneskan organista og kórstjóra, Kaido Tani.

Kaido er 53 ára og er lærður kórstjóri og hefur síðastliðin ára sungið í eistnesku óperunni ásamt því að hafa stýrt kórum. Hann hóf störf í byrjun október og mun starfa sem organisti og kórstjóri við þessar þrjár sóknir en einnig stýra samkór Fjarðabyggðar sem verið er að endurvekja.

„Mér finnst það mjög áhugavert en það verður einnig mikil áskorun fyrir mig,“ segir Kaido Tani, aðspurður um hvernig honum lítist á starfið.

„Ég lærði kórstjórn og hef verið að stýra kórum í Eistlandi á sama tíma og ég hef verið að syngja við eistnesku óperuna en áskorunin felst í því að læra inn á messuhefðirnar í söfnuðunum þremur og auðvitað að kynnast hljóðfærunum í kirkjunum betur en það eru þrenns konar orgel í kirkjunum.“

Hvað helstu áherslur í starfinu varðar segir Kaido að aðal áherslan verður að vera í góðum tengslum við bæði prestana og kórafólkið.

„Mér finnst mikilvægt að fólk njóti sín við aða syngja, að þau syngi eitthvað sem þeim raunverulega líkar að syngja. Svo vil ég einnig gera hlutina vel og legg mig fram við að vanda mig í því sem ég tek mér fyrir hendur,“ segir Kaido.

Mynd: Aðsend

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.