Nokkrar tilfæringar í efstu sætum Framsóknarflokksins

Nokkrar breytingar eru á efstu fimm sætunum á lista Framsóknarflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi. Framboðslisti fyrir kosningarnar 19. September var samþykktur í gærkvöldi.

Helga Erla Erlendsdóttir, fyrrverandi skólastjóri á Borgarfirði eystra óskaði eftir að fara úr öðru sæti í það fimmta. Í staðinn færist Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrum bæjarstjóri á Seyðisfirði upp úr þriðja sætinu og Jónína Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, fer úr fimmta sæti í það þriðja.

Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, leiðir listann og Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi í Djúpavogshreppi, skipar fjórða sætið.

Listinn var samþykktur samhljóða á almennum félagsfundi Framsóknarfélags Múlaþings í gærkvöldi. Í tilkynningu frá framboðinu segir að mikill hugur sé í Framsóknarfólki fyrir komandi kosningar. Sérstakur gestur fundarins í gær var Líneik Anna Sævarsdóttir alþingismaður sem færði fundinum og frambjóðendum kveðjur frá þingflokki Framsóknarflokksins.

1. Stefán Bogi Sveinsson, lögfræðingur og forseti bæjarstjórnar, Fljótsdalshéraði
2. Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri, Seyðisfirði
3. Jónína Brynjólfsdóttir, viðskiptalögfræðingur, Fljótsdalshéraði
4. Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi og fyrrverandi bæjarfulltrúi, Djúpavogi
5. Helga Erla Erlendsdóttir, fyrrverandi skólastjóri, Borgarfirði eystra
6. Helga Rós Magnúsdóttir, háskólanemi og verkamaður, Seyðisfirði
7. Benedikt Hlíðar Stefánsson, véltæknifræðingur, Fljótsdalshéraði
8. Alda Ósk Harðardóttir, snyrtifræðingur, Fljótsdalshéraði
9. Guðmundur Björnsson Hafþórsson, málarameistari, Fljótsdalshéraði
10. Jón Björgvin Vernharðsson, bóndi og verktaki, Fljótsdalshéraði
11. Gunnhildur Helga Eldjárnsdóttir, eldri borgari, Seyðisfirði
12. Kári Snær Valtingojer, rafvirki, Djúpavogi
13. Guðrún Ásta Friðbertsdóttir, leikskólakennari, Fljótsdalshéraði
14. Þorsteinn Kristjánsson, bóndi, Borgarfirði eystra
15. Valgeir Sveinn Eyþórsson, verkamaður, Fljótsdalshéraði
16. Óla Björg Magnúsdóttir, eldri borgari, Seyðisfirði
17. Eiður Gísli Guðmundsson, bóndi og hreindýraleiðsögumaður, Djúpavogi
18. Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi og ráðunautur, Fljótsdalshéraði
19. Hjalti Þór Bergsson, bifreiðastjóri, Seyðisfirði
20. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, búfræðingur og varabæjarfulltrúi, Fljótsdalshéraði
21. Þorvaldur Jóhannsson, fyrrverandi bæjarstjóri, Seyðisfirði
22. Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Fljótsdalshéraði

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.