NAUST: Ólögleg vopn á ferð við fuglaveiðar

naust_stjorn_2012_web.jpg

Félagar í Náttúruverndarsamtökum Austurlands (NAUST) hafa áhyggjur af því að fuglaveiðimenn sé á ferð með öflugri vopn en löglegt er. Þeir vilja að stjórnvöld herði eftirlit með slíkum vopnum. Þá hafa þeir áhyggjur af aukinni ásókn í eggjatínslu sem geti skaðað fuglastofna.

 

Þetta kemur fram í ályktunum frá aðalfundi samtakanna fyrir skemmstu. Þar er skorað á stjórnvöld að takmarka strax innflutning á vopnum sem ekki uppfylla lög um veiðar og eftirlit með vopnum sem breytt hefur verið.

„Því miður er ljóst að nokkuð er um að menn noti ólögleg vopn til fuglaveiða, hlaðinn miklu fleiri skotum en leyfilegt er. Það eru fáir, ósvífnir einstaklingar sem nota ólögleg vopn til fuglaveiða en atferli þeirra kemur óorði á alla veiðimenn,“ segir í ályktunni.

Þá er varað við aukinni ásókn í fuglaegg á Austurlandi. „Svo hart er gengið fram að  jafnvel er hreinsað hvert einasta egg úr hreiðrum en ekki virt sú forna hefð að skilja ávalt eftir egg í hreiðri. Hófleg nýting hefur ekki áhrif á fuglastofna en þar sem öll egg eru hreinsuð úr hreiðrum hefur það umtalsverð áhrif og getur jafnvel fælt fugla frá því að verpa aftur á viðkomandi slóðum.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.