Mjög róleg verslunarmannahelgi á Austurland

Lögreglumenn segjast varla muna eftir rólegri verslunarmannahelgi á Austurlandi þó mikil umferð hafi verið í fjórðungnum.

Bæjarhátíðirnar Neistaflug og Álfaborgarséns fóru fram um liðna helgi en að sögn lögreglu fóru hátíðarhöld vel fram, enda hafi lítið sem ekkert komið inná þeirra borð tengt hátíðarhöldunum.

Mikil dagskrá var að venju á Neistaflugi í Neskaupsstað en segir lögregla að þó nokkuð af fólki hafi verið saman komið í bænum. Allar skemmtanir hafi þó farið vel fram frá sjónarhorni lögreglu.

Mikil bílaumferð var í fjórðungnum um helgina en lögreglan telur að þar hafi mest verið á ferðinni erlendir ferðamenn.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.