Mikilvægt framfaramál fyrir fjórðunginn að þetta sé kannað

Í sumarbyrjun fékk Austurbrú styrk úr Þróunarsjóði innfyltjendamála til að kanna hagi og viðhorf innflytjenda á Austurlandi. Það þykir mikilvægt að kanna hagi og viðhorf þessa stóra hóps og samfélagslega aðlögum hans. Tilgangur þessarar rannsóknar er því sá og er spurt um viðhorf, skólamál, félagsþátttöku og fleira.

Um 1.000 innflytjendur af 47 þjóðernum voru hér á síðasta ári. Þar af voru Pólverjar rúmlega 500 og eru þeir vel yfir helmingur af öllum innflytjendum og tveir þriðju af þeim innflytjendum sem eru 20 ára og eldri. Þar á eftir koma Litháar, Tékkar og Danir. Innflytjendur eru alls tæp 10% af íbúum Austurlands.
Hlutfall innflytjenda er hæst í Fjarðabyggð; á Eskifirði og Reyðarfirði þar sem þeir eru um 17% af heildaríbúafjölda á hvorum stað. Á Fljótsdalshéraði eru innflyjendur um 4% af íbúafjöldanu.

Hluti af könnuninni er netkönnun sem verður dreift á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku. Hún er með öllu órekjanleg og til að niðurstaðan sé sem marktækust er vonast til þess að sem flestir taki þátt þar sem það er mikilvægt framfaramál fyrir fjórðunginn að þetta sé kannað.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.