Lögregla ekki fengið neinar nýjar upplýsingar um stuldinn á Teigarhorni
Lögreglunni á Austurlandi hafa ekki borist neinar nýjar upplýsingar um stórfellan þjófnað á geislasteinasafni frá Teigarhorni í Berufirði árið 2009.Þetta kemur fram í svari lögreglunnar við fyrirspurn Austurfréttar. Teigarhorn er einn helsti fundarstaður geislasteina og höfðu þáverandi ábúendur þar safnað steinum um áraraðir.
Upp komst um stuldinn þegar þeir snéru heim eftir fjarveru í október 2009. Talið er að allt að 500 steinar hafi verið fjarlægðir. Verðmæti steinanna var metið á milljónir króna. Ábúendurnir gripu nýverið til þess ráðs að auglýsa eftir vísbendingum um stuldinn á Facebook.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var rannsókn málsins hætt í febrúar árið 2012 og það þá flokkað sem óupplýst. Síðan hafa engar nýjar vísbendingar borist lögreglu.
Frá Teigarhorni. Mynd: Andrés Skúlason