Ákvörðun um frekari rýmingu á Seyðisfirði í kvöld

Veðurstofan er nú við mælingar og vettvangsskoðun í hlíðum Seyðisfjarðar. Gert er ráð fyrir að unnið verði úr þeim gögnum í dag og niðurstaða liggi fyrir síðar í dag eða í kvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að ákvörðun um frekari afléttingu rýminga verður þá tekin og niðurstaðan kynnt í kjölfarið. Dragist niðurstöður mun tilkynning send þess efnis, í síðasta lagi klukkan níu í kvöld.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar