Leikritið Hinn fullkomni jafningi sýnt í Frystiklefanum um helgina

hinn_fullkomnir_jafningi.png
Leikhópurinn Artik sýnir um helgina einleikinn Hinn fullkomni jafningi í Sláturhúsinu á Egilsstöðum en heimamaðurinn Unnar Geir Unnarsson er leikari sýningarinnar.

Leikhópurinn Artik var stofnaður fyrr í haust af tveimur nýútskrifuðum leikurum/leikstjórum, þeim Jennýju Láru Arnórsdóttur og Unnari Geir Unnarssyni. Bæði luku þau nýlega nám námi í leiklist og leikstjórn við ASAD-leiklistarskólann í London. 

Meðan á námi stóð áttu þau það sameiginlegt að sjá Ísland alltaf fyrir sér sem framtíðarvettvanginn fyrir listsköpun sína – og þegar heim var komið, voru ermar brettar upp og byrjað að vinna. Hinn Fullkomni Jafninginn er fyrsta verk þeirra.

Verið er samið af Felix Bergssyni og frumsýnt í Íslensku Óperunni 1999 í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur. Verkið var svo sýnt víða um heim næstu árin til dæmis í London.

Verkið fjallar um fimm menn. Þeir tengjast allir innbyrðis á einn eða annan hátt en samskipti þeirra endurspegla ekki aðeins reynslu samkynhneigðra af ástinni, heldur fela í sér sammannlega reynslu. Ástin er góð, ástin er vond, ástin er mjúk, ástin er hörð, ástin er heit, ástin er köld, ástin er ljúf, ástin er grimm.

Ástin er peningur með tvær hliðar og spurningin er hvernig hægt er að finna hamingjuna þrátt fyrir hin mörgu og að því er virðist ósamrýmanlegar ásjónur ástarinnar.

Sýnt:
Föstudaginn 15.febrúar 
KL: 20.00 Almenn sýning 
Laugardaginn 16.febrúar
KL: 20.00 Almenn sýning 

Aðgangseyrir 2000,- miðasala opnar klukkustund fyrir sýningu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.