Keppt um bestu jólasmásöguna í grunnskólum Fjarðabyggðar

Menningarstofa Fjarðabyggðar í samstarfi við grunnskólana í Fjarðabyggð efnir til jólasmásagnakeppni á aðventunni. Þátttaka er opin öllum nemendum í grunnskólum Fjarðabyggðar, en veitt verða vegleg bókaverðlaun fyrir bestu sögurnar í þremur aldurshópum – fyrir yngsta stig, miðstig og efsta stig.

Á vefsíðu Fjarðabyggðar segir að sögurnar mega vera um hvað sem er og hvernig sem er: Jólasveina, jólaketti, jólagjafir, álfa og þess vegna geimverur, dreka og galdrameistara en innsendar sögur þurfa að tengjast hátíðunum í kringum jólin með einhverjum hætti, gerast um jólin, áramótin og þar um kring

Síðan segir að sagan verður að tengjast jólunum á einhvern hátt og hún verður að vera að lágmarki 200 orð en að hámarki 1500. Ef höfundur myndskreytir söguna sína þá má taka ljósmyndir og senda þannig inn með sögunni.

„Nauðsynlegt er að lesa söguna vel yfir og lagfæra stafsetningu áður en hún er send inn. Gott er að fá aðstoð frá einhverjum í skólanum eða fjölskyldunni með það og ekki er verra ef hægt er að slá söguna inn í tölvu ef þess er kostur. Sagan verður að vera á íslensku og hún verður að vera frumsamin. Hver höfundur má senda inn tvær sögur.“ segir á vefsíðunni.

Sögur má senda á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í pósti á Menningarstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.