Jólasíld Síldarvinnslunnar komin í verkun

Hjá Síldarvinnslunni (SVN) er verkun jólasíldarinnar í ár hafin. Það fá færri en vilja að smakka á þessari síld því hún er eingöngu verkuð fyrir starfsfólk SVN og velunnara.

Fjallað er um málið á vefsíðu SVN. Þar segir að starfsmenn fyrirtækisins hafi framleitt jólasíldina um áratuga skeið, fyrst undir stjórn Haraldar Jörgensens og síðan tók Jón Gunnar Sigurjónsson við af honum. Síldin er framleidd í takmörkuðu magni og fyrst og fremst ætluð til að gleðja starfsmenn fyrirtækisins og þá sem næst því standa.

Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar, segir á vefsíðunni að sér lítist vel á síldina í ár.
„Þetta er alger úrvalssíld og eins og venjulega er hún tekin úr því skipi sem kemur með besta hráefnið að landi. Ég held að fólk geti farið að hlakka til jólasíldarinnar í ár. Síldin er fyrst og síðast framleidd fyrir starfsfólk fyrirtækisns og ég er viss um að enginn á eftir að verða fyrir vonbrigðum með hana,“ segir Jón Gunnar.

Fram kemur á vefsíðunni að sjálfsögðu hvílir leynd yfir þeim aðferðum sem notaðar eru við framleiðslu síldarinnar en þó er unnt að segja frá framleiðsluferlinu í grófum dráttum.

„Ferlið hefst á því að gæðasíldarflök eru skorin í hæfilega bita og í ár var það gert um miðjan september. Þegar skurðinum er lokið eru bitarnir settir í kör með saltpækli og þar eru þeir hafðir í um það bil einn sólarhring. Þá er síldin tekin úr körunum og sett í tunnur þar sem hún liggur í ediki í ákveðinn tíma.

Loks er síldin látin liggja í sykurlegi og er magn sykursins algert lykilatriði varðandi það hvernig til tekst. Lokaþáttur framleiðsluferilsins felst í því að síldin er tekin úr sykurleginum og sett í fötur með lauk og tilheyrandi kryddi. Þegar síldin hefur legið í fötunum í nokkra daga er hún tilbúin til neyslu og þá er hátíð í bæ hjá mörgum.“

Mynd: Wikipedia.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.