Ítreka viðvaranir um ferðir til höfuðborgarsvæðisins

Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands varar áfram við ferðum til og frá höfuðborgarsvæðisins vegna fjölda Covid-19 smita þar.


Ekkert virkt smit er á Austurlandi og er það eini landshlutinn sem getur státað af slíku ástandi. Fimm einstaklingar eru í sóttkví.

„Förum varlega, gætum að okkur í sameiningu og komumst þannig í gegnum þennan nýjasta skafl,“ segir í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.