Hvatt til sýnatöku fyrir heimferð til Austurlands

"Þá hvetur aðgerðastjórn íbúa sem nauðsynlega þurfa að leggja land undir fót yfir í aðra fjórðunga að fara þar um með ítrustu aðgætni, huga að persónubundnum sóttvörnum og ekki síst að fara í sýnatöku gegnum Heilsuveru áður en haldið er til baka. Þá er og rétt að sýnatöku lokinni að halda sig til hlés þar til niðurstaða liggur fyrir, að öllu jöfnu samdægurs."

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi. Enginn er með virkt COVID-19 smit á Austurlandi.

Í tilkynningunni segir að bólusetning hófst sem kunnugt er í fjórðungnum skömmu fyrir áramót þegar okkar viðkvæmustu íbúar og framlínustarfsfólk var bólusett. Þar er þó um hænuskref að ræða enn sem komið er fyrir heildina og langt í að hjarðónæmi náist. Við erum því sem samfélag jafn berskjölduð fyrir veirunni og áður. Mikilvægt er því sem fyrr að fara varlega.


"Höldum áfram að þramma þennan veg með það að markmiði að komast öll saman og heil heilsu á leiðarenda," segir í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.