Hringvegurinn lokaður í Berufirði
Hringvegurinn í Berufirði er lokaður þar sem vatn og aur hafa flætt yfir hann við Fossá. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að tæki séu á staðnum og verði vegurinn opnaður eins fljótt og kostur sé á.Rignt hefur hraustlega á Suðausturlandi síðan í gær og hefur vatnsyfirborð Fossár hækkað um rúma tvo metra síðan klukkan átta í gærkvöldi.
Áfram er útlit fyrir rigningu næstu daga.