Hlutfallslega flestir bólusettir eystra
Búið er að bólusetja rúm 16% Austfirðinga að hluta eða heild við Covid-19 veirunni.Þetta kemur fram í tölum sem finna má á boluefni.is en ríflega 600 Austfirðingar voru bólusettir í þessari viku.
Búið er að bólusetja 7,53% íbúa fjórðungsins að fullu og 9,22% hafa fengið sína fyrri sprautu. Þar með hafa 16,75% fengið einhverja vörn gegn veirunni. Er það aðeins meira en á Norðurlandi þar sem rúm 16% hafa fengið bóluefni.
Nær allir íbúar fjórðungsins fæddir árið 1950 eða fyrr hafa nú fengið bóluefni. Eftir páska verður byrjað á fólki með undirliggjandi sjúkdóma og haldið áfram með fólki niður að sjötugu.
Staðan á útbreiðslu veirunnar er óbreytt í fjórðungnum, 16 eru í einangrun með virkt smit. Allir greindust á landamærunum og er ekki talin hætta á að veiran dreifist út frá þeim.