Fyrsti fundur í kjaradeilu álversstarfsmanna hjá ríkissáttasemjara
Fyrsti fundur hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu AFLs Starfsgreinafélags og Rafiðnaðarsambands Íslands við Alcoa Fjarðaál var haldinn í dag. Mest ber á milli í viðræðum um laun og vinnutíma.Það voru samninganefndur félaganna sem vísuðu málinu til ríkissáttasemjara þann 18. desember síðastliðinn eftir að upp úr viðræðum slitnaði í byrjun þeirrar viku.
Fundurinn í dag var haldinn í gegnum fjarfund en á þriðjudag hefur verið boðaður vinnufundur. Að sögn Hjördísar Þóru Sigurþórsdóttur, formanns AFLs, verður framhald viðræðna metið að þeim fundi loknum.
Fundurinn á þriðjudag verður haldinn á Egilsstöðum og kemur ríkissáttasemjari austur af því tilefni. Langt mun vera síðan ríkissáttasemjari boðaði síðast fund utan höfuðborgarsvæðisins.
Kjarasamningarnir sem um ræðir runnu út í lok febrúar og hafa verið lausir frá 1. mars. Viðræður hófust um það leyti áður en deiluaðilar sömdu um sumarfrí. Þráðurinn var svo tekinn aftur upp í haust.
„Þetta endaði svo með því rétt fyrir jól að við sáum ekki ástæðu til að halda áfram á þeim nótum sem þá voru,“ segir Hjördís. Aðspurð segir hún að helst beri í milli í viðræðum um laun og vinnutíma.
Hluta deilunnar, sem snéri að túlkum um úttekt orlofs, var vísað í vor vísað til félagsdóms. Úrskurður félagsdóms barst loks skömmu fyrir jól og var Alcoa Fjarðaáli í vil. Hjördís segir það mál hafa snúist um túlkun á eldri kjarasamningi og því ekki verið hluti viðræðnanna nú en blandast inn í þær. Hún segir málinu þar með lokið, deiluaðilar hafi verið sammála um að vísa málinu til félagsdóms og una niðurstöðunni.