Fullnægjandi fjarskiptasamband tryggt áður en klippt verður á koparinn

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur náð samkomulagi við Neyðarlínuna um að tryggja fullnægjandi fjarskiptasamband á bæjum á Austurlandi áður en gamla koparkerfið (heimasíminn) verður að fullu lagt niður á næstu vikum.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér í dag.

Fyrsti áfangi Símans við að fasa út PSTN koparkerfið (heimasíma) hefst þann 1. október. Undir þann áfanga falla ýmsir staðir í dreifbýli, meðal annars í póstnúmeri 701, dreifbýli á Fljótsdalshéraði, sem tengjast símastöðinni á Brúarási á Héraði.

Neyðarlínan mun því hraða framkvæmdum við að bæta farnetssamband á tilteknum bæjum á Jökuldal á Fljótsdalshéraði, í samvinnu við Landsvirkjun og Símann. Sama mun gilda um önnur svæði á landinu þar sem á þarf að halda.

„Síðastliðin ár hef ég lagt mikla áherslu á að ljósleiðaravæða byggðir landsins í gegnum verkefnið Ísland ljóstengt. Það er gríðarlega metnaðarfull stefna.

Það er á hinn bóginn mikilvægt að samfella sé í þessari framþróun og að gamla koparkerfið verði ekki lagt af áður en tryggt er að allir bæir hafi öruggt símasamband. Því hef ég beint því til Neyðarlínunnar að tryggja að ekki komi til þess að einstaka bæir verði sambandslausir við umheiminn í þessu ferli. Það væri óásættanlegt,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.