Framboðsfundur Austurfréttar/Austurgluggans
Austurfrétt/Austurglugginn standa fyrir fundi með frambjóðendum fyrir Alþingiskosningarnar í Valaskjálf Egilsstöðum á miðvikudag.Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er öllum opinn. Að loknum stuttum framsöguræðum verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Til fundarins hefur verið boðið öllum framboðum í Norðausturkjördæmi.