Farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir hinum grunaða

manndrap_domari_07052013.jpg
Maðurinn sem er grunaður um aðild að láti karlmanns á sjötugsaldri á Egilsstöðum síðustu nótt var leiddur fyrir dómara á tíunda tímanum í kvöld í fylgd með verjanda sínum.  Helgi Jensson, fulltrúi sýslumannsins á Eskifirði, staðfesti að farið hefði verið fram á gæsluvarðhald yfir manninum á grundvelli rannsóknar- og almannahagsmuna en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um rannsókn málsins.

Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, kom fyrir dómara klukkan hálf tíu í kvöld að lokinni fyrstu yfirheyrslu. Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Eskfirði, staðfesti í samtali við Austurfrétt að farið hefði verið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald. Dómari tók sér hálftíma umhugsunarfrest og er úrskurðar hans að vænta innan tíðar.

Maðurinn hefur verið í haldi lögreglu síðan í morgun með réttarstöðu sakbornings. Hann er á þrítugsaldri.  Yfirheyrslur hófust yfir honum upp úr klukkan átta í kvöld.
 
Tæknimenn frá lögreglunni hafa verið að störfum í íbúð hins látna síðan um klukkan þrjú í dag.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar