Fagradal lokað
Veginum yfir Fagradal var lokað um klukkan hálf tíu í morgun og ákveðið hefur verið að bíða með snjómokstur yfir Fjarðarheiði. Reynt er að opna yfir Vatnsskarð til Borgarfjarðar.Þótt svartsýnustu veðurspár hafi ekki enn gengið eftir tók færð á austfirskum vegum að spillast verulega þegar leið á gærdaginn. Snjórinn er laus eftir mikla ofankomu og þarf því ekki mikinn vind til að hann skafi í milli ruðninga og valdi ófærð. Veðrið tók svo að versna á svæðinu um klukkan níu í morgun.
Fjarðarheiðinni var lokað um klukkan fjögur í gær. Vegfarendur voru þá farnir að lenda í vandræðum með fasta bíla auk þess sem aðstæður voru orðnar erfiðar fyrir snjómoksturstæki. Til stóð að senda tæki af stað í morgun en því var slegið á frest eftir að veðrið versnaði. Vitað er að mikill snjór er víða á heiðinni. Staðan verður endurmetin þegar og ef spár um að veðrinu sloti síðar í dag ganga eftir.
Moksturstæki eru hins vegar á leiðinni að Vatnsskarði og þar stendur til að reyna að opna.
Fagridalur hélst opinn þar til rúmlega níu í morgun að honum var lokað. Staðan þar verður metin eftir hádegi. Hann var metinn þungfær frá í gærkvöldi.
Færð er víða erfið eystra. Þæfingur er í gamla Djúpavogshreppi. Á leiðinni frá Egilsstöðum inn í Hallormsstað er varað við að vegurinn sé einbreiður á kafla en unnið að mokstri. Skafrenningur er á öllum leiðum en moksturstæki víða á ferðinni.
Gul veðurviðvörun fyrir Austfirði tók gildi klukkan níu í gærkvöldi. Eins og fyrr segir hafa verstu veðurspár ekki enn ræst auk þess sem dregið hefur úr bæði vindstyrk og snjókomu í nýrri spám, sérstaklega fyrir Fljótsdalshérað. Veðurspár eru engu að síður þannig að líkur eru á ófærð og því hefur lögreglan beint því til allra sem hyggja á ferðalög að kanna vel færð á vegum hjá Vegagerðinni áður en haldið er af stað.
Mynd: Unnar Erlingsson