Engin COVID smit í hálfan mánuð, enginn í einangrun eða sóttkví

Átta einstaklingar greindust með COVID-19 smit á Austurlandi í síðasta mánuði. Sá síðasti greindist 16. ágúst eða fyrir hálfum mánuði síðan.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi segir að svo virðist sem tekist hafi að koma í veg fyrir bylgju smita í kjölfarið þar sem engin smit hafa greinst síðan, enginn er í einangrun og enginn í sóttkví.

„Því lítur út fyrir að við höfum í sameiningu komist yfir hjalla sem var ekki sérlega árennilegur um miðjan mánuðinn. Ástæða er til að gleðjast vegna þess enda slik niðurstaða ekki sjálfgefin. Víti eru þó til að varast og mikilvægt sem fyrr að halda smitvörnum áfram, að virða tveggja metra reglu og gæta að handþvotti og sprittnotkun,“ segir í tilkynningunni.
 
Ennfremur segir að fjárréttir séu nú að hefjast víða í fjórðungnum. Sóttvarnayfirvöld gáfu í gær út leiðbeiningar þar sem áréttað er að vegna fjöldatakmarkana geta ekki aðrir sótt réttir en þeir sem sinna réttarstörfum. Aðgerðastjórn beinir þeim tilmælum því til íbúa fjórðungsins að sækja ekki réttir meðan þessar reglur og núverandi fjöldatakmarkanir vara nema eiga þangað erindi til starfa.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.