Engar brennur hjá Vopnafjarðarhreppi um áramót
Þessi áramótin verða engar brennur haldnar hjá Vopnafjarðarhreppi hvorki áramótabrenna né þrettándabrenna.Þetta kemur fram á vefsíðu Vopnafjarðar. Þar segir að tíu manna fjöldatakmarkanir gera það að verkum að ómögulegt er að halda viðburði sem kunna að laða að mannfjölda.
„Að því sögðu er það mikilvægt að sveitarfélög gangi á undan með góðu fordæmi og fari eftir þeim sóttvarnarreglum sem sett eru af yfirvöldum“ segir á vefsíðunni.
„Flugeldasýning mun þó fara fram á gamlársdag klukkan 17, enda ekki þörf á safnast saman til að að njóta hennar. Fólk er beðið um að hópast ekki saman og virða fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir.“