Búið að opna Fjarðarheiði en ekki hægt að hálkuverja

Búið er að opna Fjarðarheiði en þar er mjög hált og skafrenningur. Ekki er hægt að hálkuverja veginn sem stendur vegna vinds.

Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir einnig að á Fagradal sé þungfært og enn unnið að mokstri þar. Vegurinn er nú einbreiður á kafla.

Breiðdalsheiði er ófær og vegurinn um Öxi er lokaður. Þá er víða snjóþekja á Héraði og hálka eða hálkublettir niður á fjörðunum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.