Breytt snið á aðventunni á Vopnafirði

Vegna samkomutak­markana fagna Vopnfirðingar aðvent­unni með breyttu sniði þetta árið. Leikskólinn Brekkubær verður í sviðsjósinu.

Í umfjöllun á vefsíðu Vopnafjarðar segir að Í ljósi stöð­unnar í samfé­laginu verður ekki hátíð­legur viðburður fyrsta sunnudag í aðventu eins og hefð er orðin fyrir, þar sem íbúar sveit­ar­fé­lagsins hafa komið saman og notið form­legrar dagskrár við tendrun ljósa á jólatré miðbæj­arins.

Þess í stað mun hópur elstu barna af leik­skól­anum Brekkubæ nýta kennslu­stund fyrir útikennslu til að  tendra ljós trésins á skóla­tíma á morgun þriðju­daginn 1. desember, en þann dag á leik­skólinn Brekkubær einmitt afmæli og fagnar 29 árum að þessu sinni.

Mynd: Wikipwdia.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar