Björgunarsveitir að norðan á leið austur
Hátt í 20 björgunarsveitarmenn frá Eyjafirði og Skagafirði undirbúa sig undir að fara norður á Seyðisfjörð til aðstoðar við tiltekt og fleira eftir skriðuföllin þar fyrir jól.Í samtali við N4 segir Gunnlaugur Búi Ólason, formaður Súlna á Akureyri, óljóst hvaða verkefni nákvæmlega bíði norðlensku sveitanna.
Aðgerðin er samræmd á landsvísu en norðlensku sveitirnar senda tvo bíla með nauðsynleg tæki. Nú er hins vegar beðið eftir niðurstöðu úr Covid-skimun áður en hópurinn fær fararleyfi austur.