Auður Gautadóttir hlaut styrk úr Snorrasjóði

Rétt fyrir áramót var úthlutað námsstyrk úr Snorrasjóði fyrir skólaárið 2020-2021.Þetta er í annað skipti sem úthlutað er úr sjóðnum og að þessu sinni var það Auður Gautadóttir sem hlaut styrk að upphæð 500.000 kr. Auður stundar nám í læknisfræði í Slóvakíu og er nú á fimmta ári í náminu.

Fjallað er um úthlutinina á vefsíðu Djúpavogs. Þar segir að sjóðurinn var stofnaður á síðasta ári af frumkvæði Gunnþóru Gísladóttur frá Papey til minningar um Snorra Gíslason bróður sinn og tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk úr Djúpavogshreppi til náms.

"Snorri Gíslason frá Papey fæddist 4. ágúst 1915. Snorri var mikill hagleiksmaður og byrjaði hann snemma að smíða ýmsa muni svo sem húsgögn og ýmislegt smálegt. Snorri fékkst lengi vel við að smíða líkön af bátum og voru þeir eftirsóttir vegna þess hversu vandaðir þeir voru. Fínleiki bátanna vakti athygli en allt var handunnið, möstrin mótuð með hefli og sandpappír og voru bátarnir nákvæm eftirmynd af bátum í fullri stærð.

Snorri var 10 ára gamall þegar hann fór fyrst í land. Þá var farið á árabát. Pabbi hans og Ingólfur bróðir reru, þetta var ullarferð að sumarlagi, verið að skila ullinni til innlagnar á Djúpavog og Snorri fékk að fara með. Þegar í land var komið fékk Snorri að fara í verslunina þar sem hann gat keypt gráfíkjur og kandís. Eftir þetta fór Snorri einu sinni eða tvisvar í land fyrir fermingu.

Upp úr 1940 tók Snorri til við að setja upp vindrellu í Papey og setti hann svo upp hleðslustöð og lagði rafmagn í húsið. Með þessari framkvæmd varð Papey eitt fyrsta húsið á Djúpavogi sem fékk rafmagn.

Snorri fluttist í land árið 1949 þá 34 ára gamall og byggði hann sér hús á Djúpavogi sem hann nefndi sama nafni og bærinn í Papey, Bjarg. Utan á húsið festi hann sólarrafhlöðu seinna meir þar sem hann safnaði rafmagni til heimilisnota.

Snorra féll sjaldan verk úr hendi og hann var að vinna við endurbætur á húsinu sínu eða smíða skipslíkön fram á síðustu ár.

Snorri lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn 29. júní 2014.

Við óskum Auði til hamingju með styrkinn.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.