Sindri Freyr og Eva Dögg glímufólk ársins 2015
Glímusamband Íslands hefur útnefnt Reyðfirðingana Sindra Frey Jónsson og Evu Dögg Jóhannsdóttur glímufólk Íslands fyrir árið 2015. Þau sigruðu bæði í Íslandsglímunni sem haldin var á Reyðarfirði í vor.Sindri er 25 ára gamall og hefur stundað glímu í um 15 ár. Hann er alinn upp í Val Reyðarfirði en keppir í dag fyrir KR.
Hann var mjög sigursæll á árinu en helsta afrek hans var þegar hann sigraði Íslandsglímuna og hlaut þar með Grettisbeltið í fyrsta sinn.
Sindri var einnig eini glímumaður landsins sem tapaði ekki glímu á árinu. Sindri hefur verið einn fremsti glímumaður Íslands undanfarin ár. Hann glímir vel og er góð fyrirmynd jafnt innan vallar sem utan að því er segir í umsögn stjórnar sambandsins.
Eva Dögg er 20 ára gömul og keppir fyrir UÍA. Hún átti góðu gengi að fagna á glímuvellinum árið 2015. Eva tók þátt í nánast öllum glímumótum á árinu 2015 en helsta afrek hennar var þegar hún sigraði Íslandsglímuna og hlaut þar með Freyjumenið í fyrsta sinn.
Eva keppti einnig á alþjóðlegum mótum í keltneskum fangbrögðum þar sem hún var ávalt í verðlaunasæti og varð meðal annars Skoskur meistari í backhold. Eva Dögg er sögð fyrirmyndar íþróttakona jafnt innan vallar sem utan.