Brunnar opnaðir til að létta á lagnakerfinu

Björgunarsveitar- og bæjarstarfsmenn á Egilsstöðum hjálpuðust á öðrum tímanum í nótt að við að opna brunna til að létta á lagnakerfi bæjarins.


Útkall barst upp úr klukkan eitt þegar vatn byrjaði að flæða inn í Héraðsprent sem staðsett er í kjallarahúsnæði í miðbænum.

Síðan hefur heldur dregið úr úrkomunni.

Nóttin hefur annars verið tíðindalaus enn sem komið er hjá viðbragðsaðilum en þeir eiga fremur von á átökum þegar bæta tekur í vindinn með morgninum.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar