Ferðamaður slasaðist við Hengifoss

hengifossBjörgunarsveitir á Héraði voru kallaðar út um hádegisbil vegna einstaklings sem hafði slasað sig við Hengifoss. Óttast er að maðurinn sé fótbrotinn.

Björgunarmenn fóru á staðinn, hlúðu að manninum og báru hann niður í björgunarbíl sem ók með hann niður á þjóðveg þar sem sjúkrabíll tók við manninum. Er hann núna á leið á sjúkrahús til skoðunar og frekari meðhöndlunar.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar