Grátt í fjöllum í morgun

fjardarheidi 19072015 webAfar kuldalegt var um að litast á Austfjörðum í morgun en gránað hafði í hæstu fjallatinda. Snjóföl var meðfram veginum yfir Fjarðarheiði og enn  hvítara í Gagnheiði.


Samkvæmt tölum frá Veðurstofunni var hiti um frostmark á Fjarðarheiði um klukkan átta í morgun.

 

Sömuleiðis var grátt í tinda við Oddsskarð og fjöllin innst í Reyðarfirði. 

Á Fjarðarheiði upp úr klukkan níu í morgun.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar