Isavia hélt umfangsmikla almannavarnaæfingu á Egilsstaðaflugvelli

aefing isalvia web10Um 200 manns tóku þátt í flugslysaæfingu sem haldin var á Egilsstaðaflugvelli á laugardag.

Þátttakendur á æfingunni voru frá Isavia og öllum viðbragðsaðilum á svæðinu í kringum Egilsstaði. Æfð voru viðbrögð við flugslysi innan flugvallargirðingar, s.s. björgunar- og slökkviaðgerðir, greining og aðhlynning slasaðra auk umönnunar óslasaðra og aðstandenda.

Auk þess var áhersla lögð á samhæfingu vegna flutnings slasaðra, boðunarkerfi, stjórn, samhæfingu, fjarskipti, rannsókn á vettvangi og fleira.

Fjöldi viðbragðsaðila tóku þátt í æfingunni, meðal annarra Isavia, almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, slökkvilið, lögregla, heilbrigðisstofnanir, sjúkraflutningar, björgunarsveitir, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Neyðarlínan og prestar.

Frá árinu 1996 hefur Isavia haldið yfir 40 flugslysaæfingar og eru þær jafnan stærstu hópslysaæfingar sem haldnar eru ár hvert og mikilvægar heildarviðbragðskerfi Íslands, hvort sem um flugslys eða önnur hópslys er að ræða.

Um tvær til fjórar æfingar eru haldnar ár hvert, en stór flugslysaæfing er haldin á hverjum flugvelli á fjögurra ára fresti. Byggja þær á flugslysaáætlun sem gerð hefur verið fyrir hvern flugvöll. Að æfingu lokinni eru viðbrögð rýnd og kannað hvað var gert vel og hvað mætti bæta.

aefing isavia 7aefing isavia web1aefing isavia web2aefing isavia web3aefing isavia web4aefing isavia web5aefing isavia web8

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.