Baldur Kjartansson nýr starfsmaður Vopnafjarðarhrepps
Baldur Kjartansson hefur verið ráðinn sem nýr skrifstofustjóri hjá Vopnafjarðarhreppi og hóf hann störf í gær, þriðjudaginn 7. apríl. Baldur starfaði áralangt Landsbankanum og þar áður hjá póstinum.Fráfarandi skrifstofustjóri, Ellert Árnason er að hætta að eigin ósk. Hann er þó ekki með öllu hættur þar sem hann verður Baldri til leiðsagnar og aðstoðar næstu vikur.
Mynd 1: Baldur nemur fræðin af Ellerti, fráfarandi skrifstofustjóra.
Mynd 2-3: Ólafur Áki, sveitarstjóri afhendir Baldri lykil að skrifstofunni.
Myndir: Vopnafjarðarhreppur