Fjárhópur í sjálfheldu í miklum vatnavöxtum í Skriðdal

kindur skridal sjalfhelda 2014 koh webRíflega fjörutíu kindur eru strandaglópar úti í Grímsá í Skriðdal sem vaxið hefur gríðarlega í mikilli rigningu undanfarinn sólarhring. Eigandi kindanna segir ekkert ama að þeim og bíður þess að vatnið í ánni minnki.

„Þetta eru 40 gemlingar og 3 fullorðnar kindur sem eru fastar þarna," segir Kjartan Ottó Hjartarson, bóndi á Arnhólsstöðum í Skriðdal.

Úrkoma síðasta sólarhrings hefur víða mælst um 20 millimetrar undanfarinn sólarhring og við það hefur hækkað mikið í ám og vötnum.

Kindurnar voru á túninu fyrir neðan Arnhólsstaði en hafa leitað yfir á eyrarnar neðan við bæinn Hryggstekk. Þar hafi þær verið þegar fór að rigna.

Kjartan segir að ekkert ami að þeim. „Það eru grastoppar þarna svo þær svelta ekki. Eyrin er það stór enn þá."

Kjartan segir að í Skriðdal hafi rignt „rosalega í nótt" og dalurinn líti nánast út eins og fjörður. Hann tekur dæmi af vörubíl í nágrenninu sem hafi verið á þurru áður en byrjaði að rigna en Grímsáin nái honum nú upp undir pall.

Minni rigning virðist framundan og því bíður Kjartan átekta. „Ég ætla að sjá til hvort það lækki ekki. Það er spáð minni rigningu.

Gemlingarnir eru styggir og gætu farið vitlausu megin út í ána ef maður reyndi að komast að þeim á bát eða öðru."

Mynd: Kjartan Ottó Hjartarson

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.