Íslenskir þjóðstígar: Víknaslóðir skilgreint sem eitt besta göngusvæði landsins

Víknaslóðir-Víknaheiði-Breiðuvík-niður-til-hægriÁ vef Ferðamálastofu kemur fram að út er komin skýrsla um verkefnið Íslenskir þjóðstígar. Viðfangsefni þessa verkefnisins er að móta stefnu fyrir íslenskt þjóðstígakerfi en innan þess verða vinsælustu gönguleiðir landsins.

Í verkefninu er mat lagt á 15 gönguleiðir og gæðastaðall með skýrum viðmiðum þróaður. Meðal þeirra þátta sem mat er lagt á eru heildarlengd, gistimöguleikar, stikur og vörður, upplýsingaskilti, ástand stíga og aðgengi hjálparsveita að leiðinni.

Laugavegurinn er þekktasti þjóðstígur landsins og áhyggjur af álagi á honum fara vaxandi. Með því að skilgreina aðrar leiðir sem þjóðstíga má auka athygli á fleiri leiðum og stuðla þannig að dreifðara álagi, og auknum tækifærum í ferðaþjónustu.

Þær þrjár leiðir sem nú þegar uppfylla kröfur verkefnisins eru Laugavegurinn, Fimmvörðuháls og svo Víknaslóðir þ.e.a.s. leiðin frá Borgarfirði og til Seyðisfjarðar með viðkomu í skálunum í Breiðuvík, Húsavík og í Loðmundarfirði.

Þetta hlýtur að teljast mikil viðurkenning fyrir það mikla starf sem Ferðamálahópurinn, sveitarfélagið og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs hafa unnið hérna heima á undarförnum árum og verður vonandi til þess að efla enn frekar öryggi og aðgengi á svæðinu í komandi árum.

Skýrsluna má lesa í heild hérna, á vef ferðamálastofu.

Það var vefur Borgarfjarðar Eystri sem greindi frá þessu í morgun.

M
ynd: gonguleidir.is

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.