Ekki búið að greina hvað var í sjónum við álverið

mengun rfj 19092014 pgEnn er beðið eftir niðurstöður efnagreiningar á mengun sem varð vart í sjónum rétt hjá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði á föstudag. Mengunin hvarf fljótt sjónum úr sjónum.

Í hádeginu á föstudag tóku starfsmenn álversins eftir dökkri brák á sjónum sem líktist helst olíu. Hafnsögubáturinn Vöttur var sendur í staðinn og viðbragðsaðilar voru til taks en strax var þó staðfest að ekki væri um olíu að ræða.

Ekki er þó enn búið að efnagreina það sem flaut á sjónum og fengust þær upplýsingar í dag að það tæki líklega einhverja daga.

Efnið var ekki í miklu magni og virðist annað hvort hafa skolað upp í fjöru eða sokkið.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls, segir ekkert benda til að efnið komi frá álverinu enda losi það ekkert í sjóinn. Sá möguleiki fæst þó ekki útilokaður fyrr en vitað er hvaða efni var þarna á ferð.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar