Verkfræðistofa Austurlands sameinast EFLU

efla verkaust 0004 webUm síðustu mánaðamót sameinaðist Verkfræðistofa Austurlands EFLU verkfræðistofu. Fyrirtækin tvö hafa verið í umtalsverðu samstarfi undanfarin ár, sem hefur skilað góðum árangri og verið báðum aðilum til hagsbóta.

„Með þessum breytingum er verið að renna styrkari stoðum undir þá starfsemi og þjónustu sem fyrirtækin hafa stundað á Austurlandi og gefa starfsmönnum kost á að takast á við stór og spennandi verkefni um allt land og erlendis. Einnig er verið að tryggja fjölbreytt bakland í þekkingu og þjónustu," segir í tilkynningu frá EFLU.

Einar Andrésson er svæðisstjóri EFLU á Austurlandi en starfsstöðvar á svæðinu eru nú þrjár, staðsettar á Reyðarfirði, Egilsstöðum og Seyðisfirði. Þjónustan sem verið hefur hjá Verkfræðistofu Austurlands verður áfram óbreytt og engar breytingar verða í hópi starfsfólks við sameininguna.

Dagleg stjórn skrifstofunnar á Egilsstöðum verður áfram í höndum þeirra sem þar hafa starfað um langt árabil. Áfram verður lögð höfuðáherslu á öfluga starfsemi og þjónustu á Austurlandi.

Fastráðnir starfsmenn EFLU samstæðunnar eru nú um 250 talsins og hefur þeim fjölgað um rúmlega 30 % undanfarin þrjú ár.

Á Austurlandi starfa í dag 18 manns í fullu starfi og aukalega eru 4 sumarstarfsmenn og efnilegir framtíðarstarfsmenn. EFLA leggur mikla áherslu á að styrkja starfsemina bæði innanlands og erlendis, starfar í öllum landshlutum á Íslandi, er einnig þátttakandi í fyrirtækjum í sjö öðrum löndum og með verkefni víða um heim.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.